Þjónusta við nemendur í fjarnámi á háskólastigi
Framboð fjarnáms á háskólastigi eykst stöðugt og við flesta íslenska háskóla er boðið upp á fjarnám af einhverju tagi. Kennsluaðferðir eru samkvæmt ákvörðun skóla hverju sinni. Sumar námsbrautir gera ráð fyrir að nemendur stundi námið eingöngu í gegnum tölvubúnað, aðrar gera ráð fyrir notkun á myndfundabúnaði, sumar námsbrautir gera þá kröfu til nemenda að þeir mæti í námslotur meðan aðrar gera minni kröfur um slíkt. Nám er í vissum tilfellum háð því að ákveðinn fjöldi náist í námshópa og ræðst þá staðsetning af myndfundabúnaði og nemendahópi.
SMV kynnir fjarnám á háskólastigi, veitir fjarnemum þjónustu í námsverum þar sem eru myndfundabúnaðir, tölvutengingar og umsjón með próftöku. SMV veitir jafnframt ráðgjöf og upplýsingar til verðandi fjarnema og nemenda í námi.
Internetið gerir landsbyggðarfólki kleift að sækja háskólanám úr heimabyggð sem er mikilvægur valkostur.
Símenntunarmiðstöðinn á Vesturlandi leggur sig fram við að þjónusta fjarnema í háskólanámi.
Nánari upplýsingar um þjónustu Símenntunar varðandi fjarnám veitir Kristín Björg Árnadóttir á netfangið: kristin@simenntun.is