Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu – annar hluti
Námið er 66 kennslustundir og er ætlað þeim sem aðstoða, annast eða hlúa að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Námskeiðið hentar einnig þeim sem aðstoða skjólstæðinga sina við innkaup, þrif og persónulega umhirðu, auk þess að veita þeim félagslegan stuðning og aðstoð við að rjúfa félagslega einangrun.
Kennslustaðir: Borgarnes og Stykkishólmur. Á báðum stöðum verður kennt seinni partinn.
Tímasetning: Vorönn 2012
Verð: 11.000 kr
Hægt er að skoða námsskrá HÉR
Nánari upplýsingar veitir Inga Dóra Halldórsdóttir, verkefnisstjóri í síma
437 2390 / 863 0862 eða á netfangið ingadora@simenntun.is
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu – þriðji hluti
Námið er 66 kennslustundir og er ætlað þeim sem aðstoða, annast eða hlúa að sjúkum, fötluðum og öldruðum á einkaheimilum eða stofnunum. Námskeiðið hentar einnig þeim sem aðstoða skjólstæðinga sina við innkaup, þrif og persónulega umhirðu, auk þess að veita þeim félagslegan stuðning og aðstoð við að rjúfa félagslega einangrun.
Kennslustaður: Dalabyggð, kennt seinni partinn.
Tímasetning: Vorönn 2012
Verð: 11.000 kr.
Hægt er að skoða námsskrá HÉR
Nánari upplýsingar veitir Kristín Einarsdóttir, verkefnisstjóri, í síma 451 0080 / 867 3164 eða á netfangið stina@holmavik.is
Þjónustuliðar – 2 námskeið
Námið er 60 kennslustundir og ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun, starfa í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum. Markmiðið er að auka faglega færni þeirra sem starfa við ofangreindar greinar. Þannig verður farið í almennar og sérstakar kröfur um hreinlæti, smitgáttir, sóttvarnir og sótthreinsun. Einnig að þekkja hættur sem kunnaað fylgja viðfangsefnum þeirra og þekkja viðeigandi forvarnir og viðbrögð við hættuástandi.
Kennslustaður: Akranes, kennt bæði á dagtíma og kvöldtíma
Tímasetning: Vorönn 2012
Verð: 11.000 kr.
Hægt er að skoða námsskrána HÉR
Nánari upplýsingar veitir Hekla Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri, í síma 451 0080 / 867 3164 eða á netfangið hekla@simenntun.is
Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk
Þetta nám er ætlað þeim sem starfa við verkun og vinnslu sjávarafla. Markmiðið er að auka þekkingu starfsfólks á vinnslu sjávarafla, efla sjálfstraust og styrkja faglega hæfni. Námið er skipulagt af Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar og er mögulegt að fá einingar úr þessu námi metnar inn í framhaldsskóla.
Á meðal námsþátta eru:
· Fiskvinnslan – gæðastjórnun frá afla til afurða
· Vinnuaðstaða og líkamsbeiting
· Öryggi á vinnustöðum
· Starfsfólkið, atvinnulífið og launakerfin
· Samstarf og samskipti á vinnustað
Kennslustaður: Snæfellsnes
Tímasetning: Vorönn 2012
Verð: 11.000 kr.
Hægt er að skoða námsskrána HÉR
Nánari upplýsingar veitir Kristín Björg Árnadóttir, verkefnisstjóri, í síma 896 8060 eða á netfangið kristin@simenntun.is