Símenntunarmiðstöðin býður upp á sérsniðin námskeið fyrir alls konar hópa og fyrir öll tækifæri.
Á síðastliðnum misserum hefur Símenntunarmiðstöðin haldið fjöldamörg námskeið í samstarfi við Vinnumálastofnun fyrir fólk í atvinnuleit. Námskeiðin hafa miðað að því að aðstoða fólk við að bæta færni sína til að gera það betur í stakk búið til að takast á við breytingar á vinnumarkaði.
Einnig hefur Símenntunarmiðstöðin haldið námskeið inni á vinnustöðum. Bæði námskeið sem tengjast þá starfssemi fyrirtækjanna s.s. eins og námskeið fyrir fiskvinnslufólk, eða starfsfólk í mötuneytum og býtibúrum svo dæmi séu nefnd. Símenntunarmiðstöðin hefur einnig haldið íslenskunámskeið innan fyrirtækja þar sem eru margir starfsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku.
Símenntunarmiðstöðin hefur einnig tekið að sér að setja saman námskeið eftir fyrirspurning frá áhugasömum einstaklingum um nánast allt milli himins og jarðar.
Ef þú hefur hugmynd um námskeið sem þú vilt sækja t.d. með þínum vinnufélögum, saumaklúbb eða hvaða hóp sem er, hafðu þá samband og við finnum án efa einhverja lausn!