Nú á námsvísir vorannar 2012 að vera kominn í póstkassann eða inn um bréfalúguna.
Hefur þú kynnt þér hvaða námskeið eða þjónusta er í boði hjá Símenntun?
Yfirlit yfir námskeið er að finna hér á vefnum, en hringdu endilega í okkur eða sendu tölvupóst ef þig vantar aðstoð og nánari upplýsingar.
Við viljum líka minna á að algengur lágmarksfjöldi til að námskeið sé haldið er 10 einstaklingar. Námskeið sem auglýst er t.d. einungis í Stykkishólmi væri hægt að setja á í Borgarnesi ef 10 einstaklingar skrá sig.
Síminn á skrifstofu Símenntunar er 437-2390 og netfangið er simenntun@simenntun.is
Símenntunarkveðjur,
Starfsfólk Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands