Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er ein níu símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni, en hún var stofnuð 19. febrúar 1999. Símenntunarmiðstöðin er sjálfseignarstofnun og er á fjárlögum ríkisins. Árlega er gerður samningur á milli Símenntunarmiðstöðvarinnar og ríkisins, samkvæmt ríkisfjárlögum hverju sinni, en miðstöðin fær árlega framlag til að standa straum að, launakostnaði annars vegar og hins vegar húsnæðiskostnaði.
Stofnaðilar að Símenntunarmiðstöðinni eru 34 talsins, sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu.
Starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar tekur mið af framhaldsfræðslulögum, en þau tóku gildi 1. október 2010.
Markmið með starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi.
Hlutverk Símenntunarmiðstöðvarinnar er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja.
Símenntunarmiðstöðin er aðili að Kvasi, samtök fræðslu og símenntunarmiðstöðva.
Sjá nánar um Kvasi: www.fraedslumidstodvar.is
Símenntunarmiðstöðin er aðili að Leikn, samtökum fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi.
Sjá nánar um Leikn: www.leikn.is